Árið 1971 var Bílaleiga Flugleiða sérleyfishafi Hertz stofnað. Árið 2010 tók Bílasala Hertz formlega til starfa. Hertz býður glæsilegt fjölbreytt úrval eyðslugrannra og umhverfisvænna notaðra bíla.
Hertz státar af reynslumiklum starfsmönnum sem taka vel á móti þér, sem ásamt samstarfsaðilum okkar hjálpa þér að finna rétta bílinn. Við ábyrgjumst hagstætt verð á vel útbúnum gæða bílum.
Bílarnir hafa fengið reglulegt viðhald og umsjón eftir ströngu gæðakerfi Hertz. Einnig er í boði fjöldi notaðra bíla sem teknir hafa verið upp í aðrar bifreiðar Hertz.
Hertz rekur þrjú viðurkennd verkstæði og kaupir út þjónustu hjá fjölda verkstæða um allt land sem sinna reglulegu viðhaldi og þjónustu bílaflotans. Eftirlit með bílunum er því eins og best verður á kosið.
Flestir eru enn í verksmiðjuábyrgð. Hinum fylgir ábyrgð Hertz í allt að 12 mánuði eða 15.000 km, hvort sem kemur fyrr, samkvæmt ábyrgðarskilmálum Hertz.
Þessi ábyrgð gildir ekki um uppítökubifreiðar sem hafa ekki verið í rekstri Hertz, né bifreiðar í umboðssölu.
Bílasala Hertz að Selhellu 5 í Hafnarfirði hefur úrval bifreiða til sýnis. Mikið úrval Hertz bíla er einnig til sölu hjá samstarfsaðilum okkar sem eru:
Bílaleiga Flugleiða ehf. Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður Kt. 4712992439Vsk.nr. 64907
Félagið er hlutafélag sem skráð er í hlutafélagaskrá og starfar samkvæmt gildandi lögum og reglum um ökutækjaviðskipti.