Þú þarft ekki að keyra suður til að kaupa bíl frá Hertz. Hjá samstarfsaðila okkar, Bílaríki við Lónsbakka, getur þú skoðað bílana, prófað þá og gengið frá kaupunum. Alltaf heitt á könnunni.
Bílar úr flota Hertz með þekkta sögu, reglulegt viðhald og ábyrgð. Nú til sýnis og sölu á Akureyri.
Reglulegt viðhald eftir ströngu gæðakerfi Hertz, frá fyrsta degi.
Flestir eru enn í verksmiðjuábyrgð. Hinum fylgir ábyrgð Hertz í allt að 12 mánuði eða 15.000 km.
Aðstoð með bílalán og gamli bíllinn getur farið upp í kaupin.
Allir Hertz bílar sem eru til sýnis hjá Bílaríki birtast í listanum hér fyrir neðan.
Sláðu á þráðinn í 461 3636 og fáðu staðfest að bíllinn sé á planinu þegar þú kemur.
Kíktu við, fáðu þér kaffi og farðu í reynsluakstur. Taktu þér þann tíma sem þú þarft.
Sölumaður Bílaríkis gengur frá samningnum og bílaláninu ef þarf. Þú skrifar undir rafrænt og keyrir heim.